NOTE: This article is more than 5 years old.
02 júlí 2014
/
12 atvinnu- og byggðaverkefni fá styrki upp á 107 milljónir
Nýlega var úthlutað tólf styrkjum sem ætlað er að styðja við uppbyggingu verkefna á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar og öll eiga þau það sammerkt að stuðla að eflingu atvinnulífs og byggða.
Hæstu styrkina hlutu BioPol ehf. til líftæknirannsókna í sjávarútvegi 32 m.kr., Vör sjávarrannsóknasetur til rannsókna á lífríki Breiðafjarðar og samstarfsverkefni Versins vísindagarða, Háskólans á Hólum og Matís 21 m.kr.
| Styrkþegi | Verkefni | Úthlutun | ||
| Laxfiskar ehf. | Uppbygging atferlisrannsókna á nytjafiskum í sjó | 3.000.000 | ||
| Tún vottunarstofa ehf. | Þróunarverkefni á sviði lífrænnar framleiðslu 2014 | 1.000.000 | ||
| Selasetur Íslands | Talning landsela úr lofti á ströndum Íslands sumarið 2014 | 6.000.000 | ||
| Beint frá býli | Kynningarstarf, vinnsla og skráning á gæðamerki BFB | 3.500.000 | ||
| Verið vísindagarðar | Samstarfsverkefni Versins, Háskólans á Hólum og Matís | 21.000.000 | ||
| Vör sjávarrannsóknarsetur | Rannsóknir á lífríki Breiðafjarðar | 26.500.000 | ||
| BioPol ehf. | Líftæknirannsóknir í sjávarútvegi | 32.000.000 | ||
| Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða | Matarhandverk | 1.000.000 | ||
| Iceprotein ehf. | Uppbygging á framleiðsluferli og markaðssetning þorskpróteinhylkja | 6.600.000 | ||
| Lipid Pharmaceuticals | Hátæknivara úr sjávarfangi | 2.500.000 | ||
| Iceaq ehf. | Ræktun örþörunga í frárennsli frá fiskeldi | 2.000.000 | ||
| Ankra ehf. | Snyrtivörur úr fæðubótarefni unnið úr fiskkollageni | 2.500.000 | ||