NOTE: This article is more than 5 years old.
31 október 2014
/
Rafrænir reikningar frá 1. janúar 2015
Frá og með 1. janúar 2015 skulu allir reikningar til ríkisstofnana vegna kaupa ríkisins á vöru og þjónustu vera með rafrænum hætti. Ákvörðunin um að taka upp rafræna reikninga frá og með 2015 var kynnt í febrúar sl. Hún er í samræmi við gildandi samninga við birgja um fyrirkomulag reikninga.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Ríkiskaup hafa einnig gefið út yfirlýsingu um viðskiptakjör ríkisins sem skulu gilda við kaup ríkisstofnana á vöru og þjónustu, í tilvikum þar sem engir samningar eða samkomulag gilda um viðskiptin. Þar er meðal annars kveðið á um rafræna reikninga.
Nánari upplýsingar um rafræna reikninga á vef Fjársýslu ríkisins
Yfirlýsing um viðskiptakjör ríkisins