NOTE: This article is more than 5 years old.

07 nóvember 2014

/

Innanríkisráðherra keypti neyðarkall af Lilju Steinunni í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík

Árleg söfnun Landsbjargar  hófst í gær með sölu nýs neyðarkalls björgunarsveita. 


Innanríkisráðherra keypti neyðarkall af Lilju Steinunni í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík
Innanríkisráðherra keypti neyðarkall af Lilju Steinunni í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík

Fulltrúi Landsbjargar kom við í ráðuneytinu í dag og að sjálfsögðu styrkti ráðuneytið þessa mikilvægu starfsemi. Ráðuneytið hvetur alla til að taka vel á móti sjálfboðaliðum björgunarsveita á næstu dögum og styrkja þá til góðra verka okkur öllum til heilla.
Eins og fram kemur á heimasíðu Landsbjargar þá skiptir þessi sala verulegu máli í fjármögnun björgunarsveitanna.  Þeir sem vilja kynna sér verkefnið frekar er bent á heimasíðu Landsbjargar www.landsbjorg.is