NOTE: This article is more than 5 years old.

19 desember 2014

/

Nýr aðstoðarmaður innanríkisráðherra

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður innanríkisráðherra. Þórdís Kolbrún hóf störf í dag.


Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður innanríkisráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður innanríkisráðherra.

Þórdís Kolbrún lauk ML prófi frá Háskólanum í Reykjavík 2012. Hún hefur verið framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðismanna frá því vorið 2013. Hún hefur jafnframt starfað hjá embætti sýslumannsins á Akranesi, Marel og úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Þá var hún kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar.

Þórdís Kolbrún hefur tekið þátt í ýmsum félagsstörfum, m.a. verið formaður félags ungra sjálfstæðismanna á Akranesi og setið í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna og félags laganema við HR.

Þórdís Kolbrún er fædd og uppalin á Akranesi. Hún er í sambúð með Hjalta S. Mogensen lögmanni og eiga þau einn son.