NOTE: This article is more than 5 years old.
19 desember 2014
/
Reglugerð og fyrirmæli um öryggi sjúkraskráa til umsagnar

Velferðarráðuneytið leggur hér með fram til umsagnar drög að reglugerð um sjúkraskrár og drög að fyrirmælum Embættis landlæknis um öryggi sjúkraskráa. Frestur til að skila ráðuneytinu umsögnum er til 9. janúar 2015.
Markmið reglugerðarinnar og fyrirmæla landlæknis er að stuðla að öruggri skráningu, miðlun og varðveislu upplýsinga í sjúkraskrám og kveða nánar á um réttindi sjúklinga við færslu þeirra.
Umsagnir skal senda ráðuneytinu á netfangið [email protected] og skrifa í efnislínu: Öryggi sjúkraskráa.