NOTE: This article is more than 5 years old.
03 mars 2015
/
Nefnd um millidómstig hefur skilað tillögum
Nefnd sem innanríkisráðherra skipaði í ágúst 2013 til að semja reglur um skipan og starfsemi dómstóla, upptöku millidómstigs og fyrirkomulag við skipan dómara hefur skilað ráðherra tillögum sínum. Nefndin hefur samið drög að lagafrumvörpum sem lúta að upptöku millidómstigs.
Hér að neðan má sjá skilabréf nefndarinnar til innanríkisráðherra og drög að lagafrumvörpum sem nefndin hefur samið.
- Bréf nefndarinnar til ráðherra
- Drög að frumvarpi til dómstólalaga
- Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála