NOTE: This article is more than 5 years old.
05 maí 2015
/
Frumvarp til laga um félagasamtök til almannaheilla til umsagnar.
Haustið 2012 skipaði þáverandi atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra nefnd sem falið var að undirbúa löggjöf um frjáls félagasamtök og sjálfseignastofnanir sem starfa að almannaheillum. Í nefndinni áttu sæti Ragna Árnadóttir þáverandi formaður Almannaheilla, Hrafn Bragason, fv. Hæstaréttardómari og Ingibjörg H. Helgadóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Í skipunarbréfi nefndarinnar kemur fram að með frjálsum félagasamtökum og sjálfseignarstofnunum sem starfa að almannaheillum sé átt við frjáls félagasamtök sem hafa það að markmiði að vinna að heill ótiltekins fjölda manna án hagnaðarsjónarmiða þeirra sem reka og stýra félaginu. Þá sé einnig átt við sjálfseignarstofnanir, sem hafa samskonar markmið og uppfylla skilyrði laganna. Var nefndinni einkum ætlað að fjalla um hvaða skilyrði slík félög þurfi að uppfylla til að geta notið réttinda og borið skyldur samkvæmt lögunum. Nefndinni var sérstaklega falið að fjalla um skattaumhverfi almannaheillasamtaka, m.a. að því er varðar niðurfellingu skatts af aðföngum, sérreglur um erfðafjárskatt og skatt af gjafafé. Þá var nefndinni einnig ætlað að huga að löggjöf um almannaheillasamtök í nágrannaríkjum Íslands, svo sem efni stæðu til.
Nefndin skilaði af sér tillögum til iðnaðar- og viðskiptaráðherra í formi draga að frumvarpi til heildarlaga um frjáls félagasamtök sem starfa að almannaheillum. Það var niðurstaða nefndarinnar að una mætti við lög nr. 33/1999, um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, þar sem þau væru nýleg og næðu yfir sjálfseignarstofnanir sem hafa sambærileg markmið og félgasamtök sem vinna að almannaheillum. Þá taldi nefndin að rétt væri að breyta engu að því er varðar lög nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, meðan séð yrði hvernig frumvarpi um félög til almannaheilla reiddi af. Að lokum var það niðurstaða nefndarinnar að skattumhverfi félagasamtaka til almannaheilla ætti, sem annarra félagaforma, sjálfseignarstofnana og sjóða, að ráðast af skattalögum og telur að rétt sé í framhaldi af vinnu nefndarinnar að huga að athugun á samningu nýrra skattalagaákvæða varðandi skatt af aðföngum, arfi og gjafafé. Nefndin hafði m.a. til hliðsjónar í vinnu sinni finnsk lög um almenn félög, Föreningslag 26.05.1989/503.
Drög að frumvarpi nefndarinnar hafa í dag verið birt á heimasíðu ráðuneytisins til almennrar kynningar og er öllum frjálst að senda inn athugasemdir vegna þeirra. Óskað er eftir að umsagnir og athugasemdir berist eigi síðar en 1. júní 2015 með tölvupósti á tölvupóstfangið [email protected] eða bréflega til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.
Frumvarp til laga um félagsamtök til almannaheilla.