NOTE: This article is more than 5 years old.

05 maí 2015

/

Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemdir við stjórnsýslu verðlagsnefndar búvara og ráðgjafarnefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara


Ríkisendurskoðun
Ríkisendurskoðun

Í framhaldi af opinberri umræðu, þar sem að stjórnsýsla og hæfi formanns verðlagsnefndar búvara og ráðgjafarnefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara voru dregin í efa, óskaði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið eftir úttekt Ríkisendurskoðunar á störfum nefndanna. Ríkisendurskoðun hefur skilað áliti sínu og þar kemur fram að báðar nefndirnar hafa unnið í samræmi við þau lagaákvæði sem um störf þeirra gilda. 

Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemd við stjórnsýslu þessara tveggja nefnda. Að mati stofnunarinnar hafa þær unnið í samræmi við þau lagaákvæði sem lúta að störfum þeirra, m.a. undir­búningi, meðferð og úrlausn mála. Engar vísbendingar eru um að ómálefnaleg sjónarmið hafi ráðið för í þeim störfum. Í skýrslunni er þó vakin athygli á því að nefndirnar starfi ekki samkvæmt skráðum verklagsreglum. Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið (ráðherra) til að beita sér fyrir því að úr þessu verði bætt.

Varðandi efasemdir um hæfi formanns nefndanna sem er einn og sami maðurinn segir Ríkisendurskoðun að af gögnum málsins verði ekki ráðið að meint hags­muna­tengsl hans hafi haft áhrif á störf nefndanna eða niðurstöður þeirra. Nefndirnar hafi t.d. nær undantekningarlaust komist að sameiginlegri niðurstöðu um ákvarðanir sínar og aldrei hefur reynt á oddaatkvæði formanns. Að mati Ríkis­endur­skoð­unar er engu að síður mikilvægt að óhlutdrægni þeirra sem sitja í nefndum á vegum ríkisins verði ekki dregin í efa með réttu. Stofnunin hvetur ráðuneytið (ráðherra) til að tryggja að hæfi þeirra sem sitja í nefndum á þess vegum sé ávallt hafið yfir allan vafa.