NOTE: This article is more than 5 years old.
27 maí 2015
/
Forsætisráðherra fundar með fjármálaráðherra Póllands

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, átti í dag fund með fjármálaráðherra Póllands, Mateuz Szczurek, sem staddur er hér á landi í boði fjármála- og efnahagsráðherra.
Á fundinum ræddu ráðherrarnir m.a. góð samskipti Íslands og Póllands og stöðu efnahagsmála hér á landi og í Póllandi. Einnig voru málefni Úkraínu rædd og samskipti Íslands og Evrópusambandsins.
Þá kom forsætisráðherra sérstaklega á framfæri þökkum fyrir þá vináttu og stuðning sem Pólverjar sýndu Íslandi í kjölfar fjármálahrunsins 2008.