NOTE: This article is more than 5 years old.

03 júní 2015

/

Gerum Netið betra saman

SAFT verkefnið hefur náð góðum árangri í forvörnum og fræðslu og aukið vitund almennings um öryggi í netnotkun


Saft-undirritun


Heimili og skóli, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjóri og Barnaheill undirrituðu í dag, í Sjálandsskóla, samning við mennta- og menningarmálaráðuneytið, innanríkisráðuneytið  og velferðarmálaráðuneytið um stuðning við SAFT verkefnið til ársloka 2016. 



Samningurinn snýr að rekstri SAFT verkefnisins á Íslandi, en markmið og viðfangsefni SAFT er að reka vakningarátak og fræðslu um örugga og jákvæða notkun Netsins meðal barna og ungmenna, foreldra, kennara, fjölmiðla og þeirra sem starfa við upplýsingatækni.  Jafnframt því að berjast gegn ólöglegu efni á Netinu og að veita börnum og ungmennum aðstoð í gegnum hjálparlínu.  


SAFT verkefnið er í miklu samstarfi við Norðurlöndin og er einnig starfrækt sem hluti af netöryggisþætti samgönguáætlunar Evrópusambandsins sem nær til allra landa á Evrópska efnahagssvæðinu. Þrjú verkefni sameinast í SAFT: Hjálparlína, ábendingarlína og vakningarátak. 

Öflugt starf er unnið á vegum SAFT á sviði forvarna og fræðslu og kannanir sýna fram á góðan árangur verkefnisins á Íslandi og aukna vitundarvakningu um öryggi í netnotkun. Ungmennaráð SAFT hefur einnig vakið athygli fyrir vasklega framgöngu, meðal annars í jafningjafræðslu um allt land. Á þennan hátt hefur SAFT-verkefnið átt frumkvæði að því að mynda samráðsvettvang um Netið á Íslandi.



Nánari upplýsingar eru á vef SAFT