NOTE: This article is more than 5 years old.

12 júní 2015

/

Evrópsku nýsköpunarverðlaunin afhent í París


EPO verðlaunin

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar og viðskiptaráðherra, var í gær viðstödd afhendingu evrópsku nýsköpunarverðlaunanna sem fram fór í París. 

Verðlaunin, European Inventor Award, eru veitt af evrópsku einkaleyfastofunni (European Patent Office, EPO) og verðlauna framúrskarandi vísindamenn sem hafa með uppfinningum sínum komið fram með byltingarkennda nýja tækni til framþróunar á hinum ýmsu sviðum svo sem líftækni, efnafræði og hugbúnaðartækni.

Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum og uppfinningarnar sem tilnefndar eru eiga það sameiginlegt að hafa haft áhrif á samfélagslega þróun, tækniframfarir og hagvöxt um allan heim ásamt því að byggja allar á skráðum evrópskum einkaleyfum.

Við afhendingu EPO verðlaunannaÞetta var í 10. sinn sem verðlaunin eru veitt og fékk ráðherra þann heiður að afhenda verðlaunin í flokki uppfinninga sem koma frá löndum utan Evrópu.

Í þeim flokki kepptu uppfinningamenn frá Bandaríkjunum, Japan og Ástralíu en verðlaunin hlaut japanskt teymi uppfinningamanna sem uppgötvaði og þróaði framleiðsluferli fyrir nýja tegund kolefnis, carbon nanotubes. 


Aðrar uppfinningar sem voru tilnefndar til verðlauna lutu meðal annars að þróun bóluefnis gegn HPV veirunni sem veldur leghálskrabbameini, þróun aðferða við greiningu á brjóstakrabbameini og nýrri tækni við blóðtöku og blóðrannsóknir ásamt til dæmis tækni sem gerir mönnum kleift að stýra tölvum með augunum (eye-tracking system).

Viðstödd verðlaunaafhendinguna voru einnig EPO verðlaunin 1Benoit Battistelli, forstjóri EPO, Elzbieta Bienkowska, framkvæmdastjóri innri markaðar, iðnaðar, nýsköpunar og lítilla og meðalstórra fyrirtækja hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ásamt Axelle Lemaire, ráðherra nýsköpunar og stafræna iðnaðarins.