NOTE: This article is more than 5 years old.

18 júní 2015

/

CCP flytur á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Dagur B Eggertsson borgarstjóri vottuðu samning Háskólans og CCP


CCP og Vísindagarðar

Í dag var undirritaður samningur um flutning starfsemi leikjaframleiðandans CCP í nýbyggingu sem rísa mun á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands í Vatnsmýri.
Nýbyggingin mun rísa við Sturlugötu og auk nýrrar aðstöðu CCP verður aðstaða fyrir fleiri nýsköpunarfyrirtæki í hinu nýja húsi. Vísindagarðar Háskóla Íslands ehf. er félag í eigu Háskólans. Félagið var  stofnað til að efla samstarf fyrirtækja, rannsóknastofnana og háskóla um nýsköpun og skapa aðstöðu fyrir frumkvöðla. CCP er þekktast fyrir netleikinn EVE Online og rekur starfsemi bæði hér á landi og erlendis.

Sjá nánar á vef Háskóla Íslands