NOTE: This article is more than 5 years old.

08 júlí 2015

/

Leiga á einkabílum - reglugerð til umsagnar


Bílar
Bílar

Ný lög um leigu skráningarskyldra ökutækja voru samþykkt á Alþingi þann 30. júní síðastliðinn en lögin taka nú til dæmis til útleigu á öllum skráningarskyldum ökutækjum ásamt því að veita Samgöngustofu ríkari eftirlitsheimildir með starfsemi leiganna. 



Einnig er nýmæli að heimila leigu einkabíla að tilstuðlan leigumiðlana, svokallaðra einkaleiga. Ný reglugerð á grundvelli laganna mun fljótlega taka gildi og eru drög að henni nú birt og óskað eftir umsögnum.



Umsagnarfrestur er til 29. júlí nk. og hægt að senda athugasemdir á netfangið [email protected].