NOTE: This article is more than 5 years old.
29 júlí 2015
/
Ségolène Royal á Reykjanesi í boði iðnaðar- og viðskiptaráðherra

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Ségolène Royal, orku- og umhverfisráðherra Frakklands, áttu í dag hádegisverðarfund í Bláa lóninu. Þetta var í þriðja sinn sem ráðherrarnir hafa fundað, en þeir tveir fyrri áttu sér stað í París fyrr á þessu ári og í fyrra í tengslum við ráðstefnur Fransk-íslenska verslunarráðsins um nýsköpun, ferða- og orkumál.
Fyrir fundinn voru ráðherrarnir viðstaddir undirritun á samstarfssamningi milli íslensku og frönsku jarðhitaklasanna. Þar er kveðið á um vilja til eflingar á samstarfi fyrirtækja í löndunum tveimur á sviði jarðhitamála.
Á fundi ráðherranna kom fram vilji þeirra beggja til að styðja við enn frekari samstarf íslenskra og franskra fyrirtækja á sviði jarðvarmanýtingar. Frönsk stjórnvöld hafa sýnt jarðhitanýtingu aukinn áhuga á síðustu misserum, einkum á sviði húshitunar. Ríkjaráðstefna Loftslagssamnings SÞ verður haldin í París í desember n.k. þar sem Ísland og Frakkland munu hafa frumkvæði um stofnun samstöðuhóps stuðningsríkja jarðhitans – Global Geothermal Alliance sem þar verður kynnt formlega.
Eftir hádegi heimsóttu ráðherrarnir Carbon Recycling International sem nýtir útblástur Svartsengisvirkjunar til eldsneytisframleiðslu og ORF líftækni sem framleiðir hágæða snyrtivörur.
Franska sendinefndin mun síðar heimsækja Reykjanesvirkjun og fyrirtækin Stolt Sea Farm sem framleiðir senegalflúru með affalli Reykjanesvirkjunar og Haustak sem nýtir gufu frá sömu virkjun til þurrkunar á ýmsum fiskafurðum.
Heimsókn Royal lýkur í kvöld með kvöldverði iðnaðar- og viðskiptaráðherra henni til heiðurs.