NOTE: This article is more than 5 years old.

09 september 2015

/

Nýr skólameistari Framhaldskólans á Laugum

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Dr. Sigurbjörn Árna Arngrímsson skólameistara Framhaldsskólans á Laugum til fimm ára.



Dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson hefur B.S. Ed. gráðu frá University of Georgia í íþrótta- og heilsufræði, M.A. gráðu í íþróttafræði og Ph. D í íþróttafræði frá sama skóla.  Hann hefur gengt stöðu prófessors og varadeildarforseta Íþrótta- og tómstunda- og þroskaþjálfadeildar við Háskóla Íslands frá 2014.