NOTE: This article is more than 5 years old.

02 febrúar 2016

/

Sex sækja um stöðu forstjóra Hafrannsóknastofnunar

Alls bárust sex umsóknir um stöðu forstjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna en umsóknarfrestur rann út 31. janúar. Skipuð hefur verið þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækjenda. Skipað verður í embættið til fimm ára frá og með 1. apríl 2016.

Þeir sem sóttu um starfið eru:

  • Guðni Magnús Eiríksson
  • Sigurður Guðjónsson
  • Soffía B. Guðmundsdóttir
  • Þorleifur Ágústsson
  • Þorsteinn Sigurðsson
  • Þór Heiðar Ásgeirsson

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er ný stofnun sem verður til við sameiningu Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar og mun hún taka til starfa þann 1. júlí 2016.