NOTE: This article is more than 5 years old.
07 mars 2016
/
Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2016
Forinnritun nemenda í 10. bekk (sem fæddir eru árið 2000 eða síðar) hófst föstudaginn 4. mars og lýkur sunnudaginn 10. apríl.
Forinnritun nemenda í 10. bekk (sem fæddir eru árið 2000 eða síðar) hófst föstudaginn 4. mars og lýkur sunnudaginn 10. apríl. Innritun annarra en 10. bekkinga, þ.e. nemenda sem fæddir eru 1999 eða fyrr og sem ekki eru í framhaldsskóla sem stendur eða ætla að skipta um skóla, hefst mánudaginn 4. apríl og lýkur þriðjudaginn 31. maí. Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður svo frá 4. maí til 10. júní. Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr forinnritun til miðnættis föstudaginn 10. júní.
Nánari upplýsingar um innritun í framhaldsskóla er á vefnum
menntagatt.is og hjá
Menntamálastofnun.
Kynning á innritun í framhaldsskóla