NOTE: This article is more than 5 years old.

11 apríl 2016

/

90% nemenda í 10. bekk hafa sótt um í framhaldsskóla næsta haust

Forinnritun í framhaldsskóla á haustönn 2016 lauk á miðnætti 10. apríl

Forinnritun í framhaldsskóla á haustönn 2016 lauk á miðnætti 10. apríl.  Umsóknir bárust frá 90% nemenda úr 10. bekkjum grunnskóla landsins. Nemendur sem vilja breyta umsóknum sínum geta gert það á tímabilinu 4. maí til 10. júní. Ef engra breytinga er þörf stendur umsókn úr forinnritun óbreytt og fer til þeirra skóla sem sótt var um. Sjá einnig á vef Menntamálastofnunar