NOTE: This article is more than 5 years old.

13 apríl 2016

/

Sigrún Brynja Einarsdóttir skipuð skrifstofustjóri

{image.Description}
Sigrún Brynja Einarsdóttir

Ráðherra hefur skipað Sigrúnu Brynju Einarsdóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu viðskipta, nýsköpunar og ferðaþjónustu í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Undanfarin átta ár hefur Sigrún Brynja verið forstöðumaður nefndasviðs Alþingis.

Sigrún Brynja er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Auk þess hefur hún diploma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun og hefur hlotið alþjóðlega IMPA D-vottun í verkefnastjórnun. Sigrún Brynja á tvö börn.