NOTE: This article is more than 5 years old.

18 apríl 2016

/

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra stýrir umræðum á IMEX ferðakaupstefnunni í Frankfurt

{image.Description}
IMEX

IMEX ferðakaupstefnan verður haldin 19-21. apríl en hún er ein stærsta kaupstefna sinnar tegundar í heiminum þar sem megináherslan er lögð á „MICE-markaðinn“, þ.e. þann hluta ferðaþjónustunnar sem snýr að ráðstefnum, hvataferðum, sýningum og viðburðum hvers konar. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun á þriðjudaginn stýra sérstökum umræðum (Politicians Forum) þar sem stjórnmálamenn og forystumenn í ferðaþjónustu ræða samkeppnishæfni landa á þessum markaði.  

Í Vegvísi í ferðaþjónustu er lögð áhersla á aukna arðsemi ferðaþjónustunnar. Liður í því er að auka hlutdeild Íslands  á „MICE-markaðinum“  en kannanir sýna að um 7% erlendra ferðamanna á Íslandi koma vegna viðburða af þessu tagi og að meðaleyðsla þeirra á dag sé um tvöfalt meiri en hjá hinum hefðbundna ferðamanni.