NOTE: This article is more than 5 years old.

15 júlí 2016

/

Forsætisráðherra sendir samúðarkveðjur vegna árásar í Nice

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, hefur sent Manuel Valls, forsætisráðherra Frakklands, samúðarkveðjur frá ríkisstjórninni og íslensku þjóðinni vegna árásanna í Nice í gær. „Þessir skelfilegu atburðir eru mikið áfall og er hugur okkar hjá fjölskyldum og ástvinum sem eiga um sárt að binda og frönsku þjóðinni.“