NOTE: This article is more than 5 years old.

30 ágúst 2016

/

Innanríkisráðherra leggur til formlegar viðræður um framtíð Reykjavíkurflugvallar

Innanríkisráðherra hefur í dag sent Reykjavíkurborg bréf þar sem lagt er til að ríki og Reykjavíkurborg hefji hið fyrsta formlegar viðræður um framtíð Reykjavíkurflugvallar í samráði við önnur sveitarfélög og hagsmunaaðila. Í bréfinu kemur fram að innanríkisráðherra telji afar mikilvægt að ríki og Reykjavíkurborg vinni saman að því að ná víðtækri sátt um framtíð Reykjavíkurflugvallar.

Leggja verði áherslu á fjölþætta og mikilvæga almannahagsmuni sem tengjast innanlandsflugi og lögbundin markmið á sviði samgöngumála.

Þá kemur fram að viðræðurnar muni einnig byggja á þeim forsendum að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni um lengri tíma en til 2022 og að staðsetning hans verði óbreytt svo lengi sem ekki liggi fyrir skýrt samkomulag við yfirvöld samgöngumála um annað sem samræmist vilja Alþingis.