NOTE: This article is more than 5 years old.

20 september 2016

/

Íslenskum ríkisborgurum sem hafa verið búsettir erlendis lengur en átta ár gert kleift að kjósa


heimskort
enski

Umsókn íslensks ríkisborgara um að vera tekinn á kjörskrá á grundvelli þessarar heimildar þarf að hafa borist Þjóðskrá Íslands í síðasta lagi fimmtudaginn 29. september 2016. Umsóknareyðublöð er að finna á vef Þjóðskrár Íslands .

Þeir sem sent höfðu umsókn til Þjóðskrár Íslands eftir 1. desember 2015 þurfa ekki að sækja sérstaklega um aftur. Þeir verða nú teknir á kjörskrá samkvæmt lagabreytingunni og mun Þjóðskrá Íslands tilkynna viðkomandi það sérstaklega, sem og hlutaðeigandi sveitarstjórn.

Sjá nánar, lög um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 og bráðabirgðaákvæði um breytingu á þeim lögum nr. 91/2016 .