NOTE: This article is more than 5 years old.
12 október 2016
/
Næstu endurfjármögnun IDA lýkur fyrir áramót
Þriðja samningafundi um 18. endurfjármögnun
Alþjóðaframfarastofnunarinnar (IDA) lauk í gær en ráðgert er að
samningaviðræðunum ljúki í desember næstkomandi. Alþjóðaframfarastofnunin er sú
stofnun Alþjóðabankans sem veitir styrki og lán á hagstæðum kjörum til
fátækustu þróunarríkjanna.
Að sögn Þórarinnu Söebech leiðandi sérfræðings í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu verða áherslur á 18. fjármögnungartímabilinu, sem hefst árið 2017, á jafnrétti kynjanna, loftslagsmál, stjórnarfar og stofnanir, atvinnumál og hagþróun auk óstöðug ríki. „Í þessari fjármögnun er enn fremur að finna nýjungar í fjármögnun stofnunarinnar, en stofnunin gerir ráð fyrir að margfalda fjármagn sitt á tímabilinu miðað við fyrra tímabil, meðal annars í gegnum útgáfu skuldabréfa á almennum markaði. Eitt af því sem Ísland leggur áherslu á í samningaviðræðunum eru umbreytandi aðgerðir í þágu jafnréttis kynjanna og valdeflingar kvenna, enda lykilþáttur í hagvexti og sjálfbærri þróun,“ segir hún.