NOTE: This article is more than 5 years old.
20 desember 2016
/
Samkeppnishæfni þjóðarbúsins í ljósi styrkingar krónunnar
Ráðherranefnd
um efnahagsmál, sem í eiga sæti forsætisráðherra, fjármála- og
efnahagsráðherra, utanríkisráðherra og innanríkisráðherra, hefur fjallað um
viðvarandi styrkingu krónunnar og vaxandi hættu á ójafnvægi í hagkerfinu.
Ráðherranefndin ákvað að fela sérfræðingum úr forsætisráðuneyti og fjármála- og
efnahagsráðuneyti að greina stöðuna og koma með tillögur til að stemma stigu
við þensluhættu og þeirri hættu sem steðjar að samkeppnishæfni þjóðarbúsins.
Tillögurnar munu nýtast ráðherranefndinni, m.a. í umræðum um samstillingu
hagstjórnar í Þjóðhagsráði.
Styrking
krónunnar er til marks um bætta stöðu Íslands. Mikil spurn er eftir íslenskum
vörum og þjónustu sem styrkir gengið og gerir Ísland að dýrari kosti. Þessi staða
kallar á gamalkunnar hættur og krefst mikils aga í hagstjórn. Styrking
krónunnar og veruleg hækkun launa setur útflutningsatvinnuvegi í vanda og rýrir
samkeppnishæfni hagkerfisins. Hin jákvæðu skilyrði sem leika nú um
efnahagslífið geta því fljótt snúist upp í andhverfu sína. Þetta er mikilvægt
að greina vel þegar líður að næstu skrefum í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta.
Þeir
sérfræðingar sem ráðherranefndin felur að fara yfir stöðuna munu á næstu vikum eiga
fundi með hagsmunaaðilum til þess að varpa sem bestu ljósi á aðstæður og fá þeirra
hugmyndir að úrbótum.