NOTE: This article is more than 5 years old.
20 desember 2016
/
Tækniþróunarsjóður úthlutar 450 milljónum til 25 verkefna

Tækniþróunarsjóður hefur aukist um milljarð á þessu ári – fór í alls 2,4 milljarða. Í haustúthlutun sjóðsins sem fram fór í gær var 450 m.kr. úthlutað til 25 verkefna. Á seinni hluta ársins hefur sjóðurinn jafnframt úthlutað um 480 milljónum króna í framhaldsstyrki.
Það er tvennt sem vekur sérstaka athygli við haustúthlutunina; Annars vegar aukin nýliðun sem sést best á því að öll verkefnin í Sprota eru ný á borði Tækniþróunarsjóðs og sex verkefnanna í Vexti eru að fá fyrstu styrki sína í þeim flokki, og hins vegar að verkefni með aðsetur utan höfuðborgarsvæðisins eru um fjórðungur verkefnanna.
Stefnumótun Tækniþróunarsjóðs, sem hófst vorið 2014 þegar aðgerðaráætlun Vísinda- og tækniráðs var samþykkt, er nú að fullu komin í framkvæmd með umsóknarfresti sem lauk 15. september sl. Hluti nýrrar stefnumótunar fólst m.a. í því að auka nýliðun, ýta undir þekkingaryfirfærslu milli háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja, hvetja til alþjóðlegra verkefna og gera nýsköpunarferlið snarpara með hærri styrkjum. Auglýst var eftir umsóknum í nýja styrktarflokka á árinu sem ná yfir nýsköpunarferlið frá hagnýtum rannsóknarverkefnum til markaðsstarfs.
Framundan er umsóknarfrestur í Hagnýt rannsóknarverkefni (þekkingaryfirfærsla) þann 25. janúar 2017 og aftur í Sprota, Vöxt, Sprett og Markaðsstyrk þann 15. febrúar 2017.
Haustúthlutun:
Sproti
| Heiti verkefnis | Umsækjandi | Heiti verkefnisstjóra |
| Blásúra | Óstofnað fyrirtæki | Sigríður Guðrún Suman |
| e1 - Markaðstorg hleðslustöðva fyrir rafbíla | Natus ehf. | Axel Rúnar Eyþórsson |
| Ferðafélagi fyrir hreyfihamlaða | TravAble ehf. | Ósk Sigurðardóttir |
| Hönnun í framleiðslu - Gulrófa | Grallaragerðin ehf. | Búi Bjarmar Aðalsteinsson |
| Nýjar blóðflögulausnir til frumurækta | Platome Líftækni ehf. | Sandra Mjöll Jónsdóttir |
| Snákróbotar | Óstofnað fyrirtæki | Guðmundur Viktorsson |
| Travelade.com - Töggunarvél ferðaupplýsinga | Travelade ehf. | Andri Heiðar Kristinsson |
| Þjálfum hugann með skák - skákapp | Óstofnað fyrirtæki | Héðinn Steinn Steingrímsson |
| Þróun vefjaræktar á Eutrema japonicum | Wasabi Iceland ehf. | Johan Sindri Hansen |
Vöxur
| Heiti verkefnis | Umsækjandi | Heiti verkefnisstjóra |
| Bestun á framleiðni EPA ríkrar þörungaolíu | Omega Algae ehf. | Dr. Hjálmar Skarphéðinsson |
| Fjöðrunartækni Lauf þróuð inn á stærri markaði | Lauf Forks hf. | Benedikt Skúlason |
| FLOW VR | Flow ehf. | Leifur Björnsson |
| Greining notendahegðunar fyrir sýndarveruleika | Aldin Dynamics ehf. | Hrafn Þorri Þórisson |
| Hraðkæling fyrir hraðfiskibáta | Frostmark ehf. | Ragnar Jóhannsson |
| IceWind vindtúrbínur fyrir fjarskiptamöstur | IceWind ehf. | Sæþór Ásgeirsson |
| IM Innsýn | Mentor ehf. | Vilborg Einarsdóttir |
| MapExplorer | Gagarín ehf. | Ásta Olga Magnúsdóttir |
| Ný flutningaker fyrir fersk matvæli | Sæplast Iceland ehf. | Björn Margeirsson |
| Oculis - dexamethasone nanóagna augndropar | Oculis ehf. | Páll Ragnar Jóhannesson |
| Sjálfvirkni við gæðamat og snyrtingu á fiskflökum | Valka ehf. | Helgi Hjálmarsson |
| SnapStudy | Matador Media ehf | Valgerður Halldórsdóttir |
| Þróun á asco | Asco Harvester ehf. | Anna Ólöf Kristjánsdóttir |
| Þróun og framleiðsla á vörulínu fyrir þýskaland | geoSilica Iceland ehf. | Fida Muhammed Abu Libdeh |
Markaðsstyrkir
| Heiti verkefnis | Umsækjandi | Heiti verkefnisstjóra |
| Handpoint: Kemur til Ameríku | Handpoint ehf. | Þórður Heiðar Þórarinsson |
| TARAMAR vörur á Bandaríkjamarkað | TARAMAR ehf. | Guðrún Marteinsdóttir |
* Birt með fyrirvara um hugsanlegar villur.