NOTE: This article is more than 5 years old.
08 mars 2017
/
Styrkir til reksturs félagasamtaka á sviði umhverfismála

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur úthlutað rekstrarstyrkjum til frjálsra félagasamtaka.
Rekstrarstyrkirnir eru veittir félagasamtökum sem starfa á málasviði ráðuneytisins. Í ár numu umsóknir tæpum 59 milljónum króna en til úthlutunar voru tæpar 13 milljónir.
Eftirfarandi félagasamtök hlutu rekstrarstyrki fyrir árið 2017:
| Styrkþegi | Styrkfjárhæð |
| Fjöregg Mývatnssveit | 250.000 |
| Framtíðarlandið | 500.000 |
| Fuglaverndarfélag Íslands | 1.600.000 |
| Garðyrkjufélag Íslands | 1.000.000 |
| Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs | 1.400.000 |
| Landvernd | 5.100.000 |
| LÍSA | 250.000 |
| Náttúruverndarsamtök Íslands | 2.300.000 |
| Náttúruverndarsamtök Suðurlands | 250.000 |
| Skógræktarfélag Garðabæjar | 200.000 |
| Vistbyggðarráð | 100.000 |
| 12.950.000 |