NOTE: This article is more than 5 years old.
15 mars 2017
/
Nýtt samstarfsverkefni með UN Women og stjórnvöldum í Mósambík á lokastigi
Sendiráð Íslands í Mósambík undirbýr þessa dagana viðamikið
samstarfsverkefni með landsnefnd UN Women og ráðuneyti jafnréttis- og
félagsmála. Verkefnið snýr að framkvæmd verkþátta í fyrstu
aðgerðaráætlun mósambískra stjórnvalda um framkvæmd ályktunar
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi. Áætlað
er að verkefnið hefjist á öðrum ársfjórðungi 2017 og verði til ársloka
2020.
Hluti af undirbúningi verkefnisins var
vinnustofa með hagaðilum fyrr í mánuðinum. Alls mættu um þrjátíu manns
frá mismunandi stofnunum, borgarasamtökum, ráðuneytum og framlagsríkjum.
Að sögn Lilju Dóra skapaðist lífleg umræða um drögin að verkefninu
bæði um innihald og framkvæmd. "Viðstaddir voru sammála um að mikil
þörf sé á verkefninu og mikilvægi þess að vinna að þátttöku kvenna í
friðarviðræðum, öryggi kvenna og stúlkna á átakasvæðum ásamt því að
sporna gegn mögulegum átökum í landinu í framtíðinni."
Unnið er að því að ljúka við verkefnaskjalið á næstu vikum.