NOTE: This article is more than 5 years old.

24 maí 2017

/

Formaður og varaformaður Þingvallanefndar skipaðir

{image.Description}
Hugi Ólafsson
Við Þingvallavatn

Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Vilhjálm Árnason formann og Theodóru S. Þorsteinsdóttur varaformann Þingvallanefndar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi aðalmanna sem kosnir hafa verið af Alþingi til setu í Þingvallanefnd, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 47/2004, um þjóðgarðinn á Þingvöllum.

Málefni Þingvallaþjóðgarðs heyra nú undir umhverfis- og auðlindaráðuneyti skv. forsetaúrskurði.