NOTE: This article is more than 5 years old.
04 júlí 2017
/
Sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði vegna tekna af skatti á fjármálafyrirtæki
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga er byggja á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Breytingin felur í sér að þrátt fyrir ákvæði í 9. gr. laganna skuli Jöfnunarsjóður á árinu 2017 greiða sérstakt framlag að fjárhæð 650 m.kr. sem skiptast skuli hlutfallslega milli sveitarfélaganna í samræmi við hlutdeild þeirra í álögðu heildarútsvari á árinu 2016.
Útreikningarnir byggja á meðfylgjandi reglugerð um greiðslur framlagsins, sem kveður á um að framlög að fjárhæð 550 m.kr. skuli greidd út fyrir 1. júlí 2017 og að þeim verði skipt hlutfallslega milli sveitarfélaga í samræmi við hlutdeild þeirra í álögðu heildarútsvari á árinu 2016. Eftirstöðvar framlagsins, samtals um 100 m.kr., skuli greiddar þegar álagt heildaútsvar ársins 2016 liggi fyrir, en eigi síðar en 1. nóvember 2017 og skal þeim skipt á milli sveitarfélaga með sömu aðferð.
Framlagið kom til greiðslu 30. júní sl.
- Yfirlit yfir framlög
- Lög um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði), nr. 43/2017
- Reglugerð um greiðslu Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á sérstöku framlagi vegna tekna af skatti á fjármálafyrirtæki, nr. 570/2017