NOTE: This article is more than 5 years old.

18 júlí 2017

/

Umsagnarfrestur framlengdur um breytingu á sveitarstjórnarlögum

Umsagnarfrestur um drög að breytingu á sveitarstjórnarlögum hefur verið framlengdur til 4. ágúst næstkomandi. Umsagnir má senda ráðuneytinu á netfangið [email protected].


 

Drög að lagafrumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, varðar fjölda borgarfulltrúa í Reykjavík. Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi á síðasta þingi en ekki náðist að ljúka afgreiðslu þess þá.

Nánar um breytinguna.