NOTE: This article is more than 5 years old.

25 júlí 2017

/

Hamingjustund með Sri Sri Ravi Shankar

{image.Description}
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og Sri Sri Ravi Shankar, friðarerindreki

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra átti fund í dag með indverska friðarerindrekanum Sri Sri Ravi Shankar. Þeir ræddu meðal annars um hamingjuna en Ravi Shankar og samtök hans hafa hana að leiðarljósi í starfi sínu. Forsætisráðherra segir fundinn hafa verið ánægjulegan ekki síst sökum þess að Ravi Shankar telji að Íslendingar hafi allar forsendur til að vera hamingjusamasta þjóð í heimi.