NOTE: This article is more than 5 years old.

17 ágúst 2017

/

Til umsagnar: Reglugerð um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja

{image.Description}
Afgreiðsla

Velferðarráðuneytið birtir hér með til umsagnar drög að nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja sem ætlað er að fella úr gildi reglugerðir nr. 421/2017 og nr. 442/2017. Markmið reglugerðarinnar er að kveða á um verklag við ávísanir og afhendingu lyfja.

Frestur til að skila ráðuneytinu umsögnum er til 28. ágúst 2017. 

Umsagnir skal senda ráðuneytinu á netfangið [email protected] og skrifa í efnislínu:  Umsögn vegna reglugerðar um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja.