NOTE: This article is more than 5 years old.

03 september 2017

/

Óformlegur fundur forsætisráðherra Íslands og Finnlands

{image.Description}
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra ásamt Juha Sipilä, forsætisráðherra Finnlands
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra átti í dag óformlegan fund með forsætisráðherra Finnlands, Juha Sipilä. Fundurinn fór fram í Hartwell Arena íþróttahöllinni í Helsinki að loknum leik Íslands og Frakka á EM karla í körfubolta.
Forsætisráðherrarnir ræddu kappleiki helgarinnar, stöðuna í stjórnmálum og efnahagsmálum landanna tveggja og samstarf Norðurlanda.