NOTE: This article is more than 5 years old.

25 september 2017

/

Mál nr. 36/2017 Úrskurður 21. ágúst 2017

Mál nr. 36/2017                     Eiginnafn: Erasmus

 


 

Hinn 21. ágúst 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 36/2017 en erindið barst nefndinni 25. júlí.

Eiginnafnið Erasmus (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Erasmusar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Erasmus (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.