NOTE: This article is more than 5 years old.

03 október 2017

/

Mál nr. 54/2017 Úrskurður 22. september 2017

Mál nr. 54/2017                     Eiginnafn: Dexter

 


 

Hinn 22. september 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 54/2017 en erindið barst nefndinni 18. september.

Eiginnafnið Dexter (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Dexters, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dexter (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.