NOTE: This article is more than 5 years old.

03 október 2017

/

Mál nr. 58/2017 Úrskurður 22. september 2017

Mál nr. 58/2017                     Eiginnafn: Röskvi

 

 

 

Hinn 22. september 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 58/2017 en erindið barst nefndinni 21. september.

Eiginnafnið Röskvi (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Röskva og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Röskvi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.