NOTE: This article is more than 5 years old.

27 október 2017

/

Stafræna Fab Lab smiðjan á Akranesi stórefld

{image.Description}
Rakel Óskarsdóttir stjórnarformaður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra nýsköpunarmála

Fab Lab smiðjan á Akranesi hefur nú verið flutt í nýtt húsnæði og tækjabúnaður endurnýjaður að hluta. Samningur um stuðning ríkisins við Fab Lab smiðjuna var undirritaður í gær af Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Rakel Óskarsdóttur stjórnarformanni Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.  

Markmiðið með starfsemi Fab Lab smiðjanna er að auka þekkingu skólafólks og almennings á persónumiðaðri framleiðslu og stafrænum framleiðsluaðferðum.  Verkefninu er ætlað að auka áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldskólum, auka tæknilæsi og tæknivitund og efla hæfi til nýsköpunar í námi og atvinnulífi.  Markmið verkefnisins er enn fremur að skapa vettvang fyrir nýsköpun og að efla samkeppnishæfni fyrirtækja, menntastofnana og nemenda á Vesturlandi.