NOTE: This article is more than 5 years old.
15 nóvember 2017
/
Evrópudagur um vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun
Laugardagurinn 18. nóvember næstkomandi er árlegur Evrópudagur um vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun í samræmi við ákvörðun Evrópuráðsins. Meðfylgjandi eru tilvísanir á ýmis konar fræðsluefni og upplýsingar sem þessu tengjast.
Á árunum 2012–2015 unnu innanríkisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið og velferðarráðuneytið saman að vitundarvakningu um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum. Sett var á fót vefsvæði þar sem eru aðgengilegar margvíslegar upplýsingar og fræðsluefni fyrir þá sem vinna með börnum eða koma að málefnum þeirra á einhvern hátt.
- Kynning um málefni dagsins frá Mannréttindadómstól Evrópu (á íslensku)
- Upplýsingar um daginn á vef Evrópuráðsins (á ensku)
- Evrópuráðssamningur um varnir gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun á börnum (Lanzarote-samningurinn í íslenskri þýðingu)