NOTE: This article is more than 5 years old.

03 maí 2018

/

Forsætisráðherra fundaði með öldungardeildarþingmönnum franska þjóðþingsins

{image.Description}
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ásamt fjórum úr öldungardeildarþingi franska þjóðþingsins
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með fjórum öldungardeildarþingmönnum frá franska þjóðþinginu sem eru í vináttuhópi Norður-Evrópu.

Þingmennirnir, André Gattolin, þingmaður La République En Marche og varaformaður nefndar um Evrópumál; Francoise Gatel, þingmaður Ille-et-Villaine og meðlimur nefndar um velferðarmál; Marie-Pierre de la Gontrie, öldungardeildarþingmaður Sósíalistaflokksins og Vivette Lopez, þingmaður fyrir Gard-héraðið, ræddu við Katrínu um tækninýjungar og nýsköpun í sjávarútvegi, sjálfbæra ferðaþjónustu, orkumál og þróun stjórnmála á Íslandi.