NOTE: This article is more than 5 years old.

25 september 2018

/

Forsætisráðherra heimsótti Slysavarnafélagið Landsbjörgu

{image.Description}
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Smári Sigurðsson, formaður stjórnar Slysarvarnarfélagsins Landsbjargar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti í dag Slysavarnafélagið Landsbjörgu í Skógarhlíð og fundaði með fulltrúum stjórnar félagsins. Starfsemi félagsins var rædd sem og þróun hennar undanfarin ár. Miklar breytingar hafa orðið á verkefnum Slysavarnafélagsins á undanförnum árum sem meðal annars birtast í stórauknum fjölda útkalla.

Katrín Jakobsdóttir:
„Slysavarnafélagið Landsbjörg gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að fyrstu viðbrögðum við slysum og áföllum og er mikilvægur þáttur í almannavörnum Íslands.“