NOTE: This article is more than 5 years old.

18 desember 2018

/

Endurskoðuð útgáfa af Arjeplog-samningnum undirrituð

{image.Description}
Ninni Andersson/Regeringskansliet
Frá vinstri: Ove Ullerup, sendiherra Danmerkur í Svíþjóð, Liisa Talonpoika, sendiherra Finnlands í Svíþjóð, Estrid Brekkan, sendiherra Íslands í Svíþjóð, Christian Syse, sendiherra Noregs í Svíþjóð og Annika Strandhäll, starfandi félagsmálaráðherra Svíþjóðar.
Sendiherrar Íslands, Danmerkur, Finnlands og Noregs, auk starfandi félagsmálaráðherra Svíþjóðar, undirrituðu í síðustu viku  endurskoðaða útgáfu af Arjeplog-samningnum sem fjallar um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna. Hið endurskoðaða samkomulag hefur meðal annars í för með sér að stjórnvöld á Norðurlöndunum geta með auðveldari hætti deilt upplýsingum um vissa heilbrigðisstarfsmenn sín á milli. Markmiðið er að auka öryggi sjúklinga.