NOTE: This article is more than 5 years old.

28 mars 2019

/

Jafnréttisákvæði í fríverslunarsamningum – Ísland stendur fyrir málþingi í WTO ásamt UNCTAD og Botsvana

{image.Description}
Á myndinni má sjá Harald Aspelund fastafulltrúa Íslands flytja opnunarávarp. Með honum á myndinni eru Roberto Azevêdo, framkvæmdastjóri WTO, Isabelle Durant, aðstoðarframkvæmdastjóri UNCTAD, Arancha González, framkvæmdastjóri ITC og Sefatlhego Matebekwane, fulltrúi fastanefnar Botsvana.
Hvernig geta fríverslunarsamningar eflt stöðu jafnréttismála og stuðlað að því að tryggja jöfn tækifæri fyrir konur og karla á sviði alþjóðaviðskipta? Þessi spurning var í brennidepli á málþingi í Alþjóðaviðskiptastofnuninni sem Ísland, Botsvana og UNCTAD stóðu fyrir í dag.

Málþingið var haldið á grundvelli yfirlýsingar um alþjóðaviðskipti og efnahagslega valdeflingu kvenna sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tók þátt í að hleypa af stokkunum á ráðherrafundi WTO í Buenos Aires árið 2017. Í yfirlýsingunni skuldbinda ríki sig til að starfa saman að því að skilja betur hvaða hindranir standa í veg fyrir konum í viðskiptum og hvernig ríki geta starfað saman til að fjarlægja hindranirnar og tryggt jöfn tækifæri kynjanna í alþjóðaviðskiptum. Ísland hefur verið í fararbroddi við að setja jafnréttismál á dagskrá í umræðu um alþjóðaviðskipti og leiðir vinnuhóp um þessi mál í Genf sem hafði frumkvæði að gerð yfirlýsingarinnar.

Jafnréttismál hafa lengst af staðið utan umræðu um alþjóðaviðskipti en þetta hefur verið að breytast á síðustu misserum og er nú sérstaklega fjallað um jafnréttismál í nokkrum fríverslunarsamningum. Á málþinginu var litið sérstaklega til þess hvað hefur þegar verið gert á þessu sviði og hvernig megi þróa ákvæði um jafnréttismál og gefa þeim aukið vægi í framtíðinni. Þess má geta að Ísland hefur einnig haft frumkvæði að því að EFTA skoði hvernig megi taka ákvæði um jafnrétti inn í fríverslunarsamningsmódel EFTA og er sú vinna nú langt komin.