NOTE: This article is more than 5 years old.

29 maí 2019

/

Forsætisráðherra fundar með bandarískri þingmannanefnd

{image.Description}
Forsætisráðherra fundar með bandarískri þingmannanefnd
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með bandarískri þingmannanefnd undir forystu Lisu Murkowski í Stjórnarráðinu í dag.

Heimsóknin til Íslands er hluti af ferð þingmannanefndarinnar til fleiri ríkja Norðurslóða með það að markmiði skoða áhrif loftslagsbreytinga á svæðinu, kynna sér tækninýjungar og innviðauppbyggingu á sviði orkumála og ræða málefni tengd öryggis- og varnarmálum.