NOTE: This article is more than 5 years old.

03 júlí 2019

/

Umsækjendur um embætti þjóðleikhússtjóra

{image.Description}
Þjóðleikhúsið
Embætti þjóðleikhússtjóra var auglýst laust til umsóknar þann 10. maí sl. Umsóknarfrestur rann út þann 1. júlí sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, frá fjórum konum og þremur körlum. Umsækjendur eru:

Ari Matthíasson, þjóðleikhússtjóri,
Brynhildur Guðjónsdóttir, leikari og leikstjóri,
Guðbjörg Gústafsdóttir,
Kolbrún K. Halldórsdóttir, leikstjóri,
Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins,
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri
Stefán Sturla Sigurjónsson, verkefnastjóri, leikari og rithöfundur.

Skipað verður í embætti þjóðleikhússtjóra frá og með 1. janúar 2020.