NOTE: This article is more than 5 years old.

03 september 2019

/

Work in Iceland upplýsingagáttin opnuð

{image.Description}
Íslandsstofa
Á myndinni sem tekin var við opnun vefjarins Work in Iceland í húsakynnum Alvotech eru, talið frá vinstri, Árni Harðarson, aðstoðarforstjóri Alvogen og stjórnarmaður Alvotech, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, opnaði í hádeginu í dag í húsakynnum Alvotech nýjan upplýsingavef, Work in Iceland. Vefurinn er heildstæð upplýsingagátt á ensku og hefur það að markmiði að kynna Ísland sem ákjósanlegan stað til búsetu og vinnu, en ekki síst til að laða erlenda sérfræðinga til Íslands í sérfræði- og hátæknistörf.

Vefinn má finna hér: https://work.iceland.is/

Vefurinn er samstarfsverkefni Íslandsstofu, Samtaka iðnaðarins og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins en unnið hefur verið að gerð hans frá byrjun árs 2018.

Þar eru meðal annars upplýsingar um ferlið við að sækja um atvinnu- og dvalarleyfi, tryggingar og skattamál.

Work in Iceland mun einnig efla og styðja við markaðssetningu á Íslandi sem ákjósanlegum og eftirsóknarverðum stað í þeim tilgangi að laða fólk með sérfræðiþekkingu á ýmsum sviðum til landsins.

Það er ótrúlega mikilvægt fyrir íslenskt atvinnulíf að laða hingað hæft fólk. Það þýðir að fleiri taka þátt í nýsköpun og verðmætasköpun sem er hagur okkar allra. Til þess eigum við að halda á lofti styrkleikum okkar sem eru mýmargir og fjölbreyttir. Verkefnið Work in Iceland er því mikill fengur og ég er sérstaklega glöð að hafa fengið að fylgja því eftir,“ segir ráðherra.