NOTE: This article is more than 5 years old.

30 september 2019

/

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 3/2019

{image.Description}
Hari

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1. Gisting og fæði í einn sólarhring   kr. 22.700 
2. Gisting í einn sólarhring  kr. 10.700
3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag  kr. 12.000 
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 6.000

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2019. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2019 dags. 15. maí 2019.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.

 

Reykjavík, 30. september 2019

Ferðakostnaðarnefnd