NOTE: This article is more than 5 years old.

23 janúar 2020

/

Hæfnisnefndir skipaðar

{image.Description}
Hari

Dómsmálaráðherra hefur skipað hæfnisnefndir vegna stöðu Ríkislögreglustjóra, Lögreglustjórans á Austurlandi og Sýslumannsins í Vestmannaeyjum.

Eftirtaldir voru skipaðir í hæfnisnefnd vegna skipunar í stöðu Ríkislögreglustjóra:

Andri Árnason, hæstaréttarlögmaður, formaður,

Björn Rögnvaldsson, sérfræðingur hjá kjara og mannauðssýslu ríkisins

Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor í HR

Eftirtaldir voru skipaðir í hæfnisnefnd vegna embætta Lögreglustjórans á Austurlandi og Sýslumannsins í Vestmannaeyjum:

Kristín Edwald, hæstaréttarlögmaður, formaður

Andri Árnason, hæstaréttarlögmaður

Björn Rögnvaldsson, sérfræðingur hjá kjara og mannauðssýslu ríkisins