NOTE: This article is more than 5 years old.

17 febrúar 2020

/

Ísland í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna

{image.Description}
UN Photo/Jean-Marc Ferré

Um áramótin lauk átján mánaða langri setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, þeirri fyrstu sem kjörins fulltrúa. Fullyrða má að kosning Íslands 13. júlí 2018 hafi markað tímamót enda er setan í ráðinu tvímælalaust eitt veigamesta hlutverk sem Ísland hefur gegnt á alþjóðavettvangi.

Með það í huga þótti ástæða til að leggja mat á hvernig til tókst og er skýrslan Ísland í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna afrakstur vinnu sem ráðist var í við lok kjörtímabils Íslands í mannréttindaráðinu.