NOTE: This article is more than 5 years old.

21 febrúar 2020

/

Alþjóðleg orkídeusýning í Japan

{image.Description}
Sérstakur verndari sýningarinnar var prinsessan Takamado. Elín Flygenring sendiherra er hér með henni fyrir framan íslenska básinn.

Alþjóðlega orkídeusýningin Japan Grand Prix International Orchid and Flower Show 2020 fór fram dagana 13.-21. febrúar. Sýningin er eins sú stærsta sinnar tegundar í heimi og fagnaði 30 ára afmæli í ár. Hún er sú fyrsta í nýju ártali Reiwa tímabilsins sem hófst þegar nýr Japanskeisari var krýndur vorið 2019.

Elín Flygenring , sendiherra Íslands í Japan, var boðið, ásamt 5 öðrum sendiherrum, að kynna eigið land á einhvern hátt með orkídeum. Þemað á Íslandsbásnum voru norðurljósin en allt varðandi þau vekja mikla hrifningu í Japan.

Sérstakur verndari sýningarinnar er prinsessan Takamado en hún er ekkja Norihito Takamado. Þau voru sérstakir heiðursgestir við opnun íslenska sendiráðsins í Tókýó árið 2001. Japönsku keisarahjónin voru viðstödd opnun sýningarinnar í ár en hún fór fram í Tokyo Dome sem er um 13.000 fermetra sýningar- og hafnaboltahöll.